Útivistafélagið Dionysus
16.12.2006 18:56:08 / Hildur Sigfúss

hvað kom fyrir ???

Er þá díónísus dauður eða eru meðlimir bara busy við annað:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 14:15:02 / Hrebbna formaður

Eruði á lífi?

Heil og sæl!

Hvað segir liðið gott?

Nú er Díó komin með útibú á Spáni þar sem Elín Ása hefur flust þangað og Krúsi er kominn aftur til DK. Sumarið er komið hér á bæ og er það æði. Nokkrar grillveislur hafa verið haldnar, sumar kaldari en aðrar en góðar engu að síður. Öresundskollegí er aftur orðið fjölmennt af meðlimum félagsins og geri ég ráð fyrir að bjórarnir sem verða teigaðir hér á næstunni verði ófáir.

En spurningin er hvenær ætlar Íslandsútibúið að koma til Baunalands? Ætlar einhver að koma hingað í heimsókn á næstunni?

Bið að heilsa öllum og verið duglegri að láta heyra í ykkur.


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 06:29:42 / Hrebbna formaður

tveggja daga þynnka

Ef þynnka er mælikvarði á hvað maður skemmtir sér vel þá verð ég að viðurkenna að ég skemmti mér eins og konungur heimsins síðastliðinn föstudag. Við Díópakk í Danmörku héldum feikna teiti og voru sumir að til hádegis daginn eftir. Veit ég að velflestir skemmtu sér mjög vel eins og við er að búast þegar þetta fólk heldur fagnað. Búningarnir voru rosalegir.... skoðið bara myndirnar! ;)

En ég vænti að sjá sem flesta á fróninu næstu daga, jafnvel drekka einn-tvo bjóra.:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.03.2006 19:31:51 / Hildur Sigfúss

PARTY PARTY PARTY

JÁ ÞAÐ ER PARTY OG AUÐVITAÐ SEM DÍÓ FÉLAGAR ÞÁ ERU ÞIÐ ÖLL BOÐIN!!!

7. APRÍL EFTIR KLUKKAN 20:00

ÖRESUNDSKOLLEGIET - FESTRUM

SLUTS, HO S AND THEIR PIMPS

VIÐ STÖLLUR HÉR ÚTI MUNUM MÆTA Í OKKAR FÍNASTA PÚSSI EN ENNÞÁ ERU NOKKRAR SAMNINGAVIÐRÆÐUR UM stutt sítt OG þröngt vítt EN ALLS EKKI HVURSU FLEYGIР:) DÚSKAR, BINDI OG EYRU ERU FRJÁRFESTING TIL FRAMTÍÐAR.


» 10 hafa sagt sína skoðun

17.03.2006 16:24:54 / Eva

Slúður...

Á lausu klúbburinn hefur lagt niður starfsemi sína vegna þess að engin er laus lengur

Einhver á von á barni

Jolie og Pitt eru að fara gifta sig á morgun og fer ég þangað með honum Farrell mínum

Einhver er hætt/ur að drekka

Danaveldið er allt á leiðinni heim í með í för í SEÁ núna um páskana

Blautbolskeppni... hey sorry vitlaus síða

Ciao kveva


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.02.2006 18:23:14 / Eva

Æm alæv

Hæ fallega fólk

Best að segja eitthvað hérna það þarf víst að halda þessu á lífi líka :)

Ég er að fara til Búlgaríu í útskriftarferð núna í maí og ég get ekki beðið. Einnig get ég sagt ykkur það að þar verður mikið sötrað á veigum dionysusar, innlendur vodki kostar 230 kall eða eitthvað álíka fáránlega lítið.

Svo er mín bara að fara leita sér að vinnu fyrir haustið (eða frá júlí) þar sem ég ætla að reyna minnka súpuna sem fylgir mér áður en ég safna mér í aðra. Spurning um að láta drauminn rætast og fá sér 8-16 vinnu virka daga og láta það duga... væri nice get ekki sagt annað!

Fór í bústað um helgina með sex öðrum yndislegum dömum í húsmæðraorlof, já þið kannski vitið hvernig konur verða þegar þær fá helgarfrí og er helgin barasta öll ritskoðuð! hihi

Annars er ég að fara leggjast í djammdvala, eitt á mánuði, neyðist víst til þess ef ég ætla að útskrifast....

Jæja, ég er farin að skoða kynfræðsluefni!

Kveðja ég...


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.01.2006 10:49:56 / Hrebbna formaður

STELPUR DÍÓNÝSUSAR

Stelpur í Díó, þið strákarnir urðu hvort eð er allir 25 ára í fyrra en þið megið líka koma með ef þið viljið.

Upp kom sú hugmynd til að fagna öllum 25 ára afmælum saman....

Með því að skella sér í einhverja borgarferð saman. Ef við DK búar myndum koma til Íslands þá er það ekkert frí... heldur endalausar heimsóknir og stress. Ef þið Íslendingar myndu koma til DK þá er það heldur ekkert frí fyrir okkur DK búa þar sem við erum bara heima hjá okkur. En ekki væri verra ef allir myndu koma til DK og svo við halda út í heim saman. Það er hægt að fá viðbjóðslega ódýr fargjöld til ýmissa borga í Evrópu frá Danmörku og mér fyndist ekki vitlaust að nýta sér þetta. Til dæmis er hægt að komast til Berlínar á 250 í.kr. plús flugvallaskatta sem eru um 1000 í.kr. Svo eru fullt af fleiri skemmtilegum borgum í boði.

Við DK búar höfum þegar ákveðið að við ætlum að framkvæma þetta en nú er bara að fá að vita hvort Frónarbúarnir hrökkvi eða stökkvi. Hvað segiði?


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.01.2006 00:29:46 / Hildur Sigfúss

djammárið mikla 2006

já kæru félagar 2006 er runnið upp og efast ég um að það verði eitthvað tekið síður á djamminu en á því liðna.

Sjálf hef ég ekki látið mig vanta á djammið á þessu ári, í dag er jú flöskudagur en eins og allir góðir djammarar þá kann ég líka að taka frí og kýs ég því að nota hið algilda orð föstudagur í kveld:)

Á morgun er nefnilega stefnan á svaðalegt djamm með vinnufélögum mínum frá IKEA en eins og þeir vita sem skoðað hafa myndirnar mínar þá eru þetta djammarar og ölþyrst fólk mjög. Mæting er á Mexibar uppúr átta og er markmið fyrriparts kvelds að drekka nokkra double up kokteila fyrir 21 30.

En hvað er svo að frétta frá danaveldisútibúi, strax við komu ágæts formanns hrebbnu skelltum við okkru roomies á barinn hérna í byggingunni og ekki þarf að spyrja en einn öllari varð að nokkrum og drukkum við á við verstu sjóara nýkomnir úr ballarhafi. Barþjónninn sem er svo indæll að fylla á glös þrátt fyrir margítrekaðar neitanir fékk að gista á gólfinu en hann var sibbinn og nennti ekki í langferðalag heim til sín :)

Á fimmtudag kom svo sella, millilenti hérna á leið sinni til spánar og jú jú það var haldið á barinn, og sökum anna aðalformanns var ákveðið með meirihluta að svefn væri ekki í myndinni fyrr en hún væri komin í rútu á leið til frakklands. Ég mætti svo í vinnu um hádegi á föstudag og sella skellti sér í flug:)

Laugardagurinn var svo tekinn með allsherjar tilþrifum og má nefna opal eða eitur tarentinos, fiskefjæs (ódýr útgáfa fishermans), tequila, þarf ekki að spyrja þegar tequila drottningin er annars vegar :) heheh og margt annað prósentugúmmelaði :) þarf að nefna að yfirrituð fékk sér blund á dýnu í poolherbergi og svaf fastast til hádegis:) múahahahaha

núna tel ég svo klukkutímana þangað til ástkær hrebbna snýr aftur og hlakka til samverustunda okkar á barnum.

ég vil líka nefna að ég er að fara að skoða pöppa skotlands nánar tiltekið í aberdeen í byrjun febrúar og ég á ekki von á að verða fyrir vonbrigðum en leiðsögumaður minn verður enginn annar en svelgurinn bergur bróðir minn. þrátt fyrir hækkandi aldur og þroska býr nefnilega þrusudjammari og ekki er konan hans verri :) á ekki von á örðu en ég muni snúa aftur uppfull af drykkjuhefðum skota:)


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.01.2006 16:39:46 / Hrebbna formaður

Nýtt ár

Gleðilegt ár kæru félagar.

Þakka kærlega fyrir síðastliðið ár og auðvitað öll þau sem áður voru. Gamlárskvöld var mjög nett og ölvun átti formann fullkomlega. Ég er enn nett þunn eftir það kvöld. Á morgun fer ég heim til mín aftur og vildi bara segja takk fyrir frábærar stundir á meðan maður er búin að vera hérna. Ég hugsa það líði ekki jafnlangt þangað til ég kem aftur.

Endilega allir að kíkja til Köben í heimsókn!


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.12.2005 13:10:30 / Eva

áramótakveðja

Elsku limir!

Sendi ykkur öllum stórt og gott skál fyrir nýu ári og þakka fyrir góðar stundir á árinu sem er að líða!

Skemmtið ykkur díó stæl í kvöld og á morgun ;)

Sé ykkur hress á nýu ári

 

Áramótakveðjur til ykkar frá okkur, til okkar frá ykkur

 

Kv. Útivistafélagið Dionysus

 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.12.2005 02:14:43 / Eva

Spila og sötr kvöld...

Jæja, þá styttist í þetta allt saman!

Á morgun ætlum við að skola niður jólasteikinni sem við erum búin að háma í okkur síðustu daga, taka svona kannski 1-3 spil og jafnvel kippa í nokkra strengi ;)

Hvenar viljið þið að það verði mæting....19-20???

Kveðja ég...


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.12.2005 23:22:42 / Eva

Reporting to u life...

Það er smá fundur hérna í Skipholtinu....

Fundurinn er í beinni :)

Góða skemmtun,

kveðja ég...


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.12.2005 18:54:33 / Hildur Sigfúss

gleðilega jóladjammdag kæru félagar

ég vona að þið hafið öll étið og drukkið yfir ykkur á síðustu dögum, veit að ég hef gert það:) reyndar voru þetta soldið sérstök jól á aðfangadag eldaði ég eitt stykki önd með öllu tilheyrandi og var sötraður öl við eldamennsku og vínið teygað með mat. í eftirrétt fengum við okkur svo eina bail á klaka og spiluðum pool og dart. eftir 10 fjölgaði svo í húsinu og kapteinninn tekinn fram ásamt vodka og opal. jóladagur var svo tekinn í danskan julefrokost þar sem boðið var upp á öl og snapps, hildur sagði nei takk.. ekki að standa sig og þáði vatn svona í tilefni gærdagsins. fór svo heim í þreytu og þynnku og safnaði kröftum fyrir lambasteik, rauðvínsþamb og færeyskan bjór. þar sem ég er að fara að vinna á morgun þá verður ekkert djamm í kveld.

það má segja að ég hafi snúið jólum og drykkju algjörlega við en það er svo sem í lagi hérna í danaveldi.

gangið hægar um gleðinnardyr en ég myndi gera og hafið það sem allra allra best  milli jóla og nýárs

formaður danaveldis


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.12.2005 12:31:11 / Ásgeir

Gleðileg jól!!!

Kæru, ágætu meðlimir Díónýsus.

Þar sem að jólin eru að ganga í garð held ég að það sé við hæfi að skrifa fyrsta bloggið mitt sem meðlimur þó svo að ég sé búinn að vera meðlimur í þó nokkurn tíma. Eins og máltækið segir, "betra er seint en aldrei" :).

Mig langar til þess að óska ykkur öllum gleðilegra jóla, heima og fjær, og vonandi hafið þið það sem allra best á þessum tíma og ekki skemmir að þið séuð hjá þeim sem að ykkur þykir vænst um.

Íslandsdeildin, við sjáumst á fimmtudaginn hjá Evu, að ég held, og tökum vel á því í drykkjunni því það er kominn tími á að þetta drykkjufélag standi undir nafni, allavega hérna heima því Danmerkurdeildin er að taka okkur í bakaríið :)

Danmerkurdeildin, við sjáumst vonandi sem fyrst þar sem að ég held að ég hafi ekki séð ykkur öll en þar er bókað kominn tími á það.

Aftur, Gleðileg Jól og gleðilegt ár og takk fyrir það gamla, it sure was fun :)

Formaður Tónlistarráðs Díó                                                                                  Geiri


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.12.2005 09:21:12 / Eva

DAUÐ

úfff....

Var að koma heim af næturvakt sem ég veit ekki alveg af hverju ég tók... eee jú ég er blönk og alltaf gott að fá pening, sérstaklega næstu mánaðarmót þar sem engin námslán koma þá... anyways

Ég er búin að vera vakandi í sólarhring núna og var að útbúa mig í háttinn, en ákvað að stytta mér verkin og stillti tölvunni upp fyrir væntanlega verkefna vinnu kl 13.00. Sem betur fer segi ég bara, því allt í einu heyri ég hvernig lykli er stungið í skránna og hurðin opnuð! Þarf ekki að taka það fram að ég bý EIN, var það þá barasta ekki málararinn að fara kikja á svala hurðina... enn betra hann skrapp og er að koma aftur til að fara að MÁLA!!!

Mig langar að fara sofa, en þetta skal gerast núna þannig að ég verð bara að sitja aðeins lengur því ég hef engan áhuga að hátta mig undir sæng með einhvern kall hangandi yfir mér!

Svo sé ég núna að ég er ekki að skrifa á mína síðu, þetta fær þá bara að standa hérna.

Eitt að lokum, DJAMM um helgina Ó já.... og ef allt gengur sem planað þá verð ég sú sem er í mesta jólaskapinu ;)

Knús og kossar

Kveðja ég...


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8